Greinasafn eftir: Jónas Vigfússon
Stóðhestar 2015
Vinsamlegast sendið okkur upplýsingar um stóðhesta sem verða til afnota á svæði HEÞ nú í sumar og við munum birta upplýsingarnar hér á heimasíðunni.
Upplýsingar sendist á netfangið jonas.vigfusson@gmail.com
Markaðssetning á Landsmóti
Félag hrossabænda verður með aðstöðu á Hestatorginu og býður félagsmönnum sínum að koma með bæklinga og nafnspjöld til að láta liggja frammi á básnum.
Vinsamlegast hafið samband við Hallveigu Fróðadóttur fyrir miðvikudaginn 22.júní ef þið hafið áhuga á að nýta ykkur þennan möguleika, svo hægt verði að útvega standa og statíf við hæfi.
Félag hrossabænda – The Horse Breeders Association
Bændahöllinni við Hagatorg
107 Reykjavík
Sími: 563-0300
fhb@fhb.is
Kolskeggur frá Kjarnholtum á vegum HEÞ eftir landsmót
Kolskeggur frá Kjarnholtum I verður til afnota hjá Hrossaræktarsamtökum Eyfirðinga og Þingeyinga í einu löngu gangmáli eftir Landsmót.
Kolskeggur er með 8,73 í aðaleinkunn 2016, 8,66 fyrir byggingu og 8,77 fyrir hæfileika fyrir Landsmót. Nú þegar hefur komið fram 1 dæmt afkvæmi undan honum, Katla frá Kjarnholtum I, með 8,00 í aðaleinkunn 5 vetra.
Kolskeggur hefur hlotið þrjár 9,5, fyrir höfuð, samræmi og skeið, og fjórar 9,00, fyrir háls og herðar, bak og lend, tölt og vilja og geðslag.
Kolskeggur verður í girðingu að Höskuldsstöðum í Eyjafirði og er verð fyrir fengna hryssu kr. 160.000- með vsk., girðingargjaldi og einni sónarskoðun.
Tekið er á móti pöntunum á tölvupóstfangið jonas.vigfusson@gmail.com eða hjá Jónasi í síma 861 8286.
Ungfolaskoðun og DNA sýnataka
Boðið verður upp á ungfolaskoðanir og DNA-sýnatöku úr hrossum á Norðurlandi í næstu viku. Þorvaldur Kristjánsson, ábyrgðarmaður hrossaræktar, verður á ferðinni á eftirtöldum svæðum:
Skagafjörður – miðvikudagurinn 27. apríl.
Eyjafjörður- og Þingeyjarsýslur – fimmtudagurinn 28. apríl.
Húnavatnssýslur – föstudagurinn 29. apríl.
Tekið er á móti pöntunum og nánari upplýsingar gefnar í síma 892-9690 eða á netfanginu: thk@rml.is. Pantanir þurfa að berast í síðasta lagi mánudaginn 25. apríl.
Átaksverkefnið horses of Iceland
Nú er undirbúningur fyrir markaðsverkefnið Horses of Iceland komið á lokastig og verður fyrsti fundur með þátttakendum haldinn miðvikudaginn 20. apríl að Hótel Sögu í fundarsalnum Kötlu á 2.hæð. Hefst fundurinn kl 13:00 og stendur til 15:00.
Allvel hefur gengið að afla stuðnings við verkefnið en eins og kynnt hefur verið fáum við framlag frá ríkinu allt að 25.000.000 árlega næstu 4. árin gegn því að hagsmunaaðilar leggi til jafn háa fjárhæð á móti, sem sagt króna á móti krónu. Það er mikilvægt að við fjármögnum okkar hluta að fullu þannig að verkefnið geti stundað öflugt starf í kynningu á öllu sem tengist Íslenska hestinum.
Markaðsverkefnið Horses of Iceland er og verður lifandi verkefni og mun taka breytingum í verkefnavali eftir því sem reynslan kennir okkur. Þeir sem taka þátt í verkefninu verða því mikilvægir í að móta áherslur verkefnisins sem og við að fjármagna verkefnið. Núna getum við öll sem höfum hagsmuni af íslenska hestinum sameinast í kynna hestinn okkur til framdráttar og virðisauka.
Þessi fundur er opin öllu þeim sem verða þátttakendur í verkefninu. Vertu með!
Hér má nálgast samning til að taka þátt í verkefninu og hér er upplýsingablað um ávinninginn.
Aðalfundur HEÞ
Aðalfundur HEÞ verður haldinn í Hlíðarbæ 21. apríl n.k. kl. 20.
Dagskrá venjuleg aðalfundarstörf.
Allir félagar hafa seturétt, málfrelsi og tillögurétt á aðalfundi. Atkvæðisrétt hafa stjórnarmenn samtakanna, formenn aðildarfélaga og að auki einn fulltrúi fyrir 1-20 félaga, 2 fulltrúar fyrir 21-40 félaga o.s.frv.
Stjórnin
Markaðsstarf íslenska hestsins – fundur með Íslandsstofu
Eins og sumir hafa kannski heyrt þá hafa hagsmunaaðilar tengdir íslenska hestinum tekið sig saman um að byggja upp markvisst markaðsstarf í kringum íslenska hestinn. Markmiðið er að auka gjaldeyristekjur af íslenska hestinum.
Íslenski ríkið hefur lofað 25 milljónum á ári í fjögur ár ef það safnast saman sama upphæð úr greininni, þannig að um er að ræða 50 milljónir á ári í 4 ár. Þetta er gríðarlegt tækifæri fyrir okkur öll sem erum tengd þessum frábærum hesti og vonum við að fá sem flestar með okkur sem samstarfsaðila.
Íslandsstofu var fengin til að stýra verkefnið og langar mig að bjóða ykkur á fund til að kynna núverandi stöðu, framtíðar sýn, og vörumerkið okkar „Íslenski Hesturinn“.
Hvar: Búgarður Óseyri 2 Akureyri.
Hvenær: mánudaginn 22. Feb, kl 11:00 – 12:30
Hér er hægt að sjá fréttir um verkefnið á vef Íslandsstofu og einnig er hægt að skoða kynningar, tölfræði, og kynningarmyndband: http://www.islandsstofa.is/frettir/markadsverkefni-um-islenska-hestinn-til-naestu-fjogurra-ara/662
Tillögur um val kynbótahrossa á landmót 2016
Nefnd sem skipuð var eftir seinasta aðalfund Félags hrossabænda hefur skilað tillögum sínum um val kynbótahrossa á næsta landsmót.
Fjallað verður um tillögurnar á aðalfundi Félags hrossabænda 6. nóv. n.k.
Tillögurnar má sjá með því að smella á hlekkin hér fyrir neðan.
Haustfundur HEÞ – Verðlaunaveitingar
Haustfundur HEÞ var haldinn í Ljósvetningabúð s.l. þriðjudag samhliða fundaherferð félags hrossabænda og fagráðs í hrossarækt.
7 vetra og eldri hryssur: | Uppruni | Sýnandi | Sköpulag | Hæfileikar | Aðaleinkunn | Ræktendur: | ||
1. | IS2008265006 | Leynd | Litlu-Brekku | Þórður Þorgeirsson | 8,38 | 8,31 | 8,34 | Vignir Sigurðsson |
2. | IS2008267180 | Sæmd | Sauðanesi | Katharina Fritsch | 8,09 | 8,46 | 8,31 | Ágúst Marinó Ágústsson |
3. | IS2008267161 | Jónsmessa | Gunnarsstöðum | Agnar Þór Magnússon | 7,96 | 8,45 | 8,26 | Jóhannes Sigfússon og Fjóla Runólfsdóttir |
6 vetra hryssur: | ||||||||
1. | IS2009265791 | Stáss | Ytra-Dalsgerði | Ævar Örn Guðjónsson | 7,91 | 8,45 | 8,24 | Kristinn Hugason og Hugi Kristinsson |
2. | IS2009265792 | Sefja | Ytra-Dalsgerði | Ævar Örn Guðjónsson | 8,18 | 8,18 | 8,18 | Kristinn Hugason og Hugi Kristinsson |
3. | IS2009264512 | Storð | Sámsstöðum | Höskuldur Jónsson | 8,09 | 8,23 | 8,17 | Höskuldur og Elfa, Sámsstöðum |
5 vetra hryssur: | ||||||||
1. | IS2010265656 | Eldborg | Litla-Garði | Stefán Birgir Stefánsson | 8,06 | 8,44 | 8,29 | Stefán Birgir og Herdís, Litla-Garði |
2. | IS2010265792 | Duld | Ytra-Dalsgerði | Ævar Örn Guðjónsson | 8,06 | 8,38 | 8,25 | Kristinn Hugason og Hugi Kristinsson |
3. | IS2010265291 | Auðlind | Brúnum | Jakob Svavar Sigurðsson | 7,89 | 8,51 | 8,26 | Hákon Hákonarson |
4 vetra hryssur: | ||||||||
1. | IS2011264068 | Garún | Garðshorni á Þelamörk | Agnar Þór Magnússon | 8,04 | 8,25 | 8,16 | Agnar og Birna, Garðshorni |
2. | IS2011265890 | Óskastund | Kommu | Agnar Þór Magnússon | 8,36 | 7,93 | 8,1 | Vilberg Jónsson og Vignir Siguróla |
3. | IS2011265669 | Dalía Sif | Árgerði | Ásdís Helga Sigursteinsdóttir | 7,94 | 7,46 | 7,65 | Magni Kjartansson |
7 vetra og eldri stóðhestar: | ||||||||
1. | IS2008165890 | Kapall | Kommu | Viðar Ingólfsson | 8,41 | 8,4 | 8,4 | Vilberg Jónsson |
2. | IS2008165306 | Djákni | Skriðu | Katja Honnefeller | 7,96 | 8,39 | 8,22 | Þór og Sigríður Skriðu |
3. | IS2008165057 | Nói | Hrafnsstöðum | Vignir Sigurðsson | 8,17 | 8,05 | 8,1 | Zophonías Jónmundsson |
6 vetra stóðhestar: | ||||||||
1. | IS2009166018 | Bóas | Húsavík | Árni Björn Pálsson | 8,41 | 8,44 | 8,43 | Vignir Sigurólason |
2. | IS2009165051 | Vængur | Grund | Þórarinn Eymundsson | 8,48 | 8,31 | 8,38 | Friðrik Þórarinsson |
3. | IS2009165101 | Póstur | Litla-Dal | Þórhallur Rúnar Þorvaldsson | 8,39 | 8,33 | 8,36 | Jónas og Kristín Litla-Dal |
5 vetra stóðhestar: | ||||||||
1. | IS2010166206 | Eðall | Torfunesi | Gísli Gíslason | 7,96 | 8,47 | 8,27 | Ræktunarbúið Torfunesi ehf.- Karyn B MC Farland og Anna Fjóla Gísladóttir |
2. | IS2010165678 | Baldur | Akureyri | Agnar Þór Magnússon | 8,02 | 8,24 | 8,15 | Páll Hjálmarsson |
3. | IS2010166420 | Dimmir | Hellulandi | Tryggvi Björnsson | 7,96 | 7,94 | 7,95 | Kristján H. Sigtryggsson |
4 vetra stóðhestar: | ||||||||
1. | IS2011165060 | Árblakkur | Laugasteini | Agnar Þór Magnússon | 8,04 | 8,41 | 8,26 | Ármann Gunnarsson |
2. | IS2011166211 | Mozart | Torfunesi | Gísli Gíslason | 8,16 | 7,84 | 7,97 | Torfunes ehf |
3. | IS2011164487 | Kolbeinn | Efri-Rauðalæk | Baldvin Ari Guðlaugsson | 8,02 | 7,69 | 7,82 | Snjólaug og Guðlaugur |