Folaldasýning Náttfara verður á haldin laugardaginn 9. febrúar nk. á Melgerðismelum.
Sýningin verður með hefðbundnu sniði og dómari er Eyþór Einarsson ráðunautur.
Sýningin er öllum opin, jafnt félagsmönnum sem öðrum, félagar eru hvattir til að koma með gripi sína og fá á þá dóm.
Gjald fyrir folald er kr. 500 en kr.1.000 fyrir utanfélagsmenn.
Einnig er hægt að koma með ungfola á annan og þriðja vetur.
Verðlaun eru veitt félagsmönnum fyrir efstu sæti í hverjum flokk.
Við vonumst til að sjá sem flesta nýta sér þessa ráðgjafaþjónustu.
Skráningu er á netfangið einar@krummi.is og líkur henni á hádegi föstudaginn 8 feb.
Stjórn Náttfara