Gátlisti fyrir umsjónarmenn stóðhesta
Félag hrossabænda, Bændasamtök Íslands, Hólaskóli - Háskólinn
á Hólum, Landbúnaðarstofnun, Landbúnaðarháskóli Íslands og Landgræðslan hafa
tekið saman gátlista fyrir umsjónarmenn stóðhesta þar sem fram koma ýmis
heilræði. Listinn verður birtur í Handbók bænda og á öllum algengustu vefjum sem
tengjast hrossaræktinni.
Stóðhestahólf – Gátlisti
Minnispunktar fyrir umsjónarmenn stóðhestahólfa
Fjöldi hryssna hjá stóðhesti
- Æskilegur hámarksfjöldi hryssna sem hleypt er í hólf hjá stóðhesti þar sem
tímabilið er 4-6 vikur eru 25 hryssur.
- Þó um lengra tímabil sé að ræða er ekki æskilegt að fleiri en 30-35 hryssur
séu hjá séu hjá hestinum í senn.
- Ef hryssu er bætt inn í hóp hjá stóðhesti þarf að fylgjast mjög vel með því
hvernig stóðhesturinn tekur hryssunni en það getur verið mjög breytilegt milli
stóðhesta.
- Hæfilegt er að nota hvern stóðhest á 50–60 hryssur á ári. Notkun þarf þó að
taka mið af aldri og ástandi hestsins. Ungfolum og gömlum hestum er ekki hægt að
ætla sama fjölda og fullþroskuðum hestum í góðu formi. - - Yfirleitt ná
stóðhestar ekki fullri frjósemi fyrr en við 6 vetra aldur.
- Stóðhestar sem fá mikla notkun og eru notaðir í meira en einu gengi ættu að fá
nokkra daga hvíld á milli tímabila til þess að endurnýja krafta sína.
Áreiti frá umhverfi
- Óæskilegt er að utanaðkomandi hross komist að stóðhestagirðingu, en það getur
haft mjög truflandi áhrif á stóðhestinn og jafnvel skapað hættu á að hross fari
í eða á girðingar.
Beit
- Grundvallaratriði er að beitin endist allt tímabilið og sé það góð að hún dugi
hryssum til viðhalds og mjólkurmyndunar og folöldum til eðlilegs þroska. Verði
afturkippur í fóðrun hrossanna getur það haft neikvæð áhrif á frjósemina.
- Ástand hólfsins ætti aldrei að fara niður fyrir ástandsflokk 2 samkvæmt riti
Landgræðslunnar og Rala „Hrossahagar“.
- Góður kostur getur verið að bjóða upp á hey með beitinni en það eykur
fjölbreytni fóðurs og léttir beitarálagið.
- Nauðsynlegt er að hrossin hafi aðgang að salti.
- Nánari leiðbeiningar um landgæði fylgja í viðauka sem birtur er á heimasíðu
Fhb, www.fhb.is
- Héraðsfulltrúar Landgræðslunnar eru fúsir að veita leiðbeiningar um beitarmál.
Vatn
- Vatn þarf að vera í nægilegu magni, hreint og ómengað. Því er best að rennandi
vatn sé í hólfinu, ekki treysta á tjarnir, skurði eða dý.
Girðingar
- Yfirfara þarf allar girðingar svo tryggt sé að þær þjóni tilgangi sínum og/eða
valdi ekki slysum. Í reglugerð nr. 748/2002 er kveðið á um hvaða
lágmarksskilyrði girðing þarf að uppfylla til þess að teljast fullnægjandi
varsla fyrir hross.
Hættur
- Tryggja þarf að ekki finnist hættur í hólfinu s.s. gamlar girðingadræsur, dý
eða jarðföll.
- Ef skurðir eru í hólfinu þarf að meta hvort þeir séu hættulausir, annars að
girða þá af.
Ormalyfsgjafir
- Æskilegt er að öll hross fari ormahreinsuð í stóðhestahólf. Það dregur
verulega úr ormasmiti í haganum.
- Þrátt fyrir að ormalyf sé gefið áður en hrossum er hleypt í hólfið er
nauðsynlegt að gefa folöldum og hryssum ormalyf þegar þau koma heim úr
stóðhestahólfum.
Merking hrossa
- Öll hross sem koma í hólfið ættu að vera einstaklingsmerkt.
- Þó að folöld séu merkt er það góð regla hjá stóðhesthaldara að skrá niður kyn
og litareinkenni þeirra.
Stóðhestaskýrslur
- Stóðhestaskýrslur og fyljunarvottorð frá BÍ eru góð form til að halda utan um
skráningu á hryssunum og niðurstöðum sónarskoðana.
- Skýrslunum er hægt að skila inn til næsta búnaðarsambands til skráningar í
WorldFeng.
Eftirlit
- Umráðamenn stóðhesta skulu hafa daglegt eftirlit með stóðhestahólfum, enda er
kveðið á um það í aðbúnaðarreglugerð fyrir hross (reglugerð 160/2006 um aðbúnað,
umhirðu og heilbrigðiseftirlit hrossa). Umráðamenn stóðhesta bera með því ábyrgð
á að hross sem verða fyrir áreiti eða slysum í slíkum girðingum séu tekin frá og
eigendum þeirra gert viðvart. Eigendur skulu sjá til þess að slösuð hross fái þá
meðferð sem nauðsynlegt er.
- Fylgjast skal með heilbrigði hrossanna og að nægt framboð sé af fóðri og
drykkjarvatni.
- Fylgjast þarf með atferli hrossanna því hegðun einstakra hryssna í hólfinu
getur valdið verulegri truflun fyrir stóðhestinn og hamlað því að fyljun verði
eðlileg í hólfinu.
- Ekki er ráðlegt að setja hryssur í stóhestahólf sem ekki hafa haldið
undangengin 1-2 ár án dýralæknisskoðunar.
Samningar
- Góð regla er að gera skriflega samninga þegar stóðhestar eru teknir á leigu.
Þar komi skýrt fram ákvæði um verð og ábyrgð, hámarksfjölda hryssna og annað er
leigunni tengist.
Ábyrgð
- Algengast er að hryssur séu á ábyrgð eigenda sinna í stóðhestahólfum.
- Umsjónarmaður stóðhestahólfs getur þó verið skaðabótaskyldur ef um tjón er að
ræða, verði hann uppvís að vítaverðu gáleysi sem brýtur í bága við reglugerð um
aðbúnað hrossa.
Gátlisti þessi er gerður að vori 2007 í samstarfi fulltrúa Félags hrossabænda,
Bændasamtaka Íslands, Hólaskóla, Landbúnaðarstofnunar, Landbúnaðarháskóla
Íslands og Landgræðslu ríkisins.