Hér má sjá fréttir frá HEÞ frá árinu 2005:
 
Skýrsluhald í hrossarækt (20. desember 2005)
Nú ættu allir skýrsluhaldarar í hrossarækt að hafa fengið send eyðublöð frá B.Í til útfyllingar. Til þess að folöld fædd 2005 eigi möguleika á A-vottun á ætterni verða ræktendur að skila inn folaldaskýrslum fyrir áramót. Fyljunarvottorð og stóðhestaskýrslur þurfa einnig að berast fyrir áramót eigi folöld sem fæðast 2006 að eiga möguleika á A-vottun. 
Upplýsingar um frjósemi eru afar mikilvægar í ræktunarstarfinu. Því er óhætt að hvetja ræktendur til þess að skila inn vel útfylltum fyljunarvottorðum þar sem fram kemur niðurstaða fangskoðunar og sem staðfest er af dýralækni með undirskrift.
Allar skýrslur vegna hrossaæktar í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum á að senda á skrifstofur Búgarðs.

 

Blær og Rák hæst dæmdu kynbótahrossin hjá HEÞ (28. október 2005)

Blær og Þorvar Þorsteinsson

Á Haustfundi HEÞ 26. október sl. hlutu ræktendur hæst dæmda stóðhests og hæst dæmdu hryssu, á félagssvæði HEÞ, sérstaka viðurkenningu. Hæst dæmdi stóðhestrinn var stólpahesturinn Blær frá Torfunesi S-Þing., en hann hlaut einnig hæsta hæfileikadóm stóðhests í heiminum á árinu. Blær hlaut 8,80 fyrir hæfileika og 8,55 í aðaleinkunn. Ræktandi er Baldvin Kr. Baldvinsson í Torfunesi.

Hæst dæmda hryssan var gæðingurinn Rák frá Halldórsstöðum í Eyjafirði. Hún hlaut í aðaleinkun 8,28. Tvær aðrar hryssur, Blíða frá Flögu og Framtíð frá Bringu hlutu reyndar sömu einkunn en þegar reiknað var á þriðja aukastaf reyndist Rák hlutskörpust. Ræktandi Rákar er Rósa Hreinsdóttir á Halldórsstöðum. 

 

Efri-Rauðilækur ræktunarbú ársins, Garðsá og Bringa einnig tilnefnd (28. október 2005)

Þrjú bú voru tilnend til Ræktunarverðlauna HEÞ 2005. Það voru Garðsá, Bringa, og Efri-Rauðilækur.  Ræktunarbú ársins var valið Efri-Rauðilækur en þar stunda hrossarækt feðgarnir Guðlaugur Arason og Baldvin Ari Guðlaugsson ásamt fjölskyldum sínum. Búið hlaut viðurkenningu á haustfundi Hrossaræktunarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga sem fram fór í gærkvöldi. Frá Efri-Rauðalæk hlutu 8 hross fullnaðardóm á liðnu ári og 5 fengu 8,0 eða meira í aðaleinkunn. Einnig voru fulltrúar frá Efri-Rauðalæk í keppni á HM í Svíþjóð í sumar. Hæst dæmda kynbótahross búsins á liðnu sumri var stóðhesturinn Krókur en hann er undan Otri og Kviku (sammæðra Ljósvaka frá Akureyri). Krókur hlaut 8,53 fyrir hæfileika og 8,38 í aðaleinkunn. Frábær árangur hjá þeim á Efri-Rauðalæk og er búið einnig tilnefnt til titilsins “Ræktunarbú ársins 2005” yfir landið.

 

HEÞ kaupir 1/3 í Gígjari frá Auðsholtshjáleigu (28. október 2005)

Hrossaæktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga hafa keypt liðlega þriðjungshlutafé (33,35%) í Gígjari ehf. Gígjar ehf. er hlutafélag sem stofnað var á síðasta ári um stóðhestinn Gígjar (IS2000187051) frá Auðsholtshjáleigu og var það áður alfarið í eigu Þórdísar Gunnarsdóttur. Kaupverð hlutarins er kr. 7.063.937.- Á hluthafafundi félagsins 26. október sl. var kjörin ný stjórn í félaginu. Hana skipa Þórdís Gunnarsdóttir, Kristbjörg Eyvindsdóttir og Vignir Sigurðsson. Til vara voru kosnir Gunnar Arnarson og Þorsteinn Hólm Stefánsson.

Á meðfylgjandi mynd eru Þórdís Gunnarsdóttir og Baldvin Kr. Baldvinsson formaður HEÞ að undirrita kaupsamning og var það gert á haustfundi HEÞ sem haldinn var í Funaborg 26. október sl.

 

Andvari seldur (21. október 2005)

Gengið hefur verið frá sölu á þriðjungshlut í stóðhestinum Andvara frá Ey til 15 félagsmanna í HEÞ. Kaupverð er 2 milljónir króna að virðisaukaskatti meðtöldum.

 

Munið haustfundinn! (18. október 2005)

Nú liggur fyrir hvaða fyrirlesarar halda erindi á haustfundi HEÞ. Gunnar Arnarsson hrossabóndi og hrossaútflytjandi mun fjalla um sölu og markaðsmál í hrossaræktinni og Rúnar Þór Guðbrandsson svæðisstjóri hjá VÍS-AGRIA kynnir tryggingar á hrossum. Eins og áður hefur verið greint frá mun Guðlaugur Antonsson landsráðunautur í hrossaækt einnig mæta á fundinn og fara yfir sviðið í hrossaræktinni.

Fundurinn verður haldinn í Funaborg Melgerðismelum miðvikudaginn 26. október nk. kl. 20.30. Afhent verða ræktunarverðlaun HEÞ. Félagsmenn og annað áhugafólk er hvatt til að mæta. Kaffi og meðlæti í boði Samtakanna.

 

DNA ætternisgreining íslenska hrossastofnsins (18. október 2005)

Stefnt er á að DNA-ætternisgreina sem stærstan hluta þeirra hrossa sem virk eru í ræktunarstarfinu. Ástæður eru m.a. þær að sífellt eru gerðar meiri kröfur um nákvæma ætternisgreiningu við sölu. Víða erlendis er í dag krafist sýnatöku, eigi hrossið að fást skráð í ættbækur svo sem WorldFeng og stóðhestar fá ekki notkunarleyfi nema vera DNA greindir. Auk þess hlýtur rétt ættfærsla að vera grundvallaratriði við útreikninga á skipulagningu ræktunarstarfs. Sýni þau sem hér um ræðir verða stroksýni úr nös.

Stofnverndarsjóður íslenska hestakynsins mun greiða kostnað við greiningu á öllum hryssum sem náð hafa aðaleinkuninni 7,50 eða hærra í kynbótadómi. Hrossaræktendum er frjálst að láta taka sýni á sinn kostnað úr öllum þeim hrossum sem þeir vilja. Æskilegt væri að taka sýni úr að minnsta kosti öllum merfolöldum og efnilegum mertryppum auk fullorðinna mera sem eru að sanna sig í ræktun jafnvel þótt þær séu ódæmdar eða með lágan einstaklingsdóm. Einungis verða tekin sýni úr einstaklingsmerktum hrossum. Hrossaræktendur bera kostnað af vinnu sýnatökumanns. (Texti fengin úr grein GVA í Bændablaðinu 27. sept. sl.)

Á starfssvæði Búgarðs (Eyjafjörður og Þingeyjasýslur) verður gjaldskrá og fyrirkomulag eftirfarandi (verð án vsk.). Greining á sýni (Prokaria ehf.) kr. 1.600.- (frí greining fyrir hryssur með 7,50 eða hærra). Sendingarkostnaður á sýni er áætl. kr. 400.-. Tímagjald sýnatökumanns kr. 2.500 /klst. Ekki verður innheimt fyrir akstur en reynt verður að skipuleggja vinnuna þannig að sem minnstur tími fari í milliferðir.

Þeir sem áhuga hafa á að láta taka sýni úr hrossum nú á komandi mánuðum hafi samband við afgreiðslu Búgarðs í síma 460-4477 eða sendi tölvupóst á vignir@bugardur.is og gefi jafnframt upp fjölda hrossa.

 

Andvari til sölu (5. október 2005)

Á nýafstöðnum fulltrúaráðsfundi var ákveðið að selja hlut HEÞ (1/3) í stóðhestinum Andvara frá Ey. Jafnframt var ákveðið að áður en til sölu kemur á almennum markaði verði félagsmönnum HEÞ gefinn kostur á að kaupa þennan hlut.

Hrossaræktarsamtök Suðurlands hafa nýverið selt eignarhlut sinn (2/3) í Andvara og er kaupandinn á þeirra hlut Þór Bjarkar í Reykjavík. Samið var um að Þór Bjarkar hefði ekki forkaupsrétt á hlut HEÞ til 15. október, eða á meðan kannað væri með sölu til félagsmanna hér.

Verðhugmynd fyrir þriðjungshlut HEÞ er 2 milljónir (með vsk) og miðað við að 15 til 20 aðilar keyptu væri verðið á hvern þeirra á bilinu 100 – 133 þúsund (með vsk.). Þeir sem vilja kaupa hlut í hestinum hafi samband við Ríkarð 895-1118 eða Zophonías í síma 892-6905 í síðasta lagi mánudaginn 10. október. Undirrita þarf kaupsamninga í síðasta lagi föstudaginn 14. október. Eftir þann tíma fær Þór Bjarkar forkaupsrétt við sölu á hlut HEÞ.

 

Fyljunarhlutfall stóðhesta - samantekt (5. október 2005)

Í töflunni hér að neðan má sjá notkun og niðurstöður ómskoðana þeirra hesta sem voru á vegum Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga og deilda sl. sumar. 

 

 

notkun

jákvæð

hlutfall

Gustur frá Hóli

fyrra gangmál

25

9

36%

Andvari frá Ey

húsnotkun

15

9

60%

Hrymur frá Hofi

fyrra gangmál

25

17

68%

Hróður frá Refsstöðum*

langt gangmál

40

31+

78%+

Flygill frá V-Leirárgörðum

fyrra gangmál

17

0

0%

* Eftir er að sónarskoða 6 hryssur, sem voru hjá Hróðri fram til 15 sept. og væntanlega eru einhverjar af þeim fengnar. Endanleg niðurstaða verður tilkynnt þegar hún liggur fyrir.

Gustur var á Sæðingastöðinni á Gunnarsholti frá 1. maí til 30. júní. Sæðisgæði voru afar döpur og niðurstaðan að aðeins 2 hryssur héldu við honum þar. Gustur er nú á Vesturlandi og er útlit fyrir þokkalega útkomu. Þegar þetta er ritað er búið að sónarskoða 16 hryssur fengnar frá honum.

 

Haustfundur HEÞ verður í Funaborg  (5. október 2005)

Haustfundur HEÞ verður haldinn í Funaborg Melgerðismelum miðvikudaginn 26. október nk. kl. 20.30. Á fundinn mætir Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur og verið er að kanna með fleiri áhugaverða fyrirlesara.  Afhent verða ræktunarverðlaun HEÞ. Félagsmenn og annað áhugafólk er hvatt til að mæta. Kaffi og meðlæti í boði Samtakanna.

 

Áfall með Flygil  (18. ágúst 2005)

Flygill frá Vestri-Leirárgörðum hefur verið í hólfi með 17 hryssur á Syðra Fjalli í Aðaldal á vegum Hrossaræktarfélags Suður-Þingeyinga. Sónarskoðað var hjá klárnum sl. þriðjudag og reyndust allar hryssurnar tómar. 

 

Léleg útkoma hjá Gust (18. ágúst 2005)

Gustur frá Hóli var fyrra gangmál (júlímánuð) í Svarfaðardal. Í dag var sónarskoðað frá honum og af 25 hryssum sem voru hjá honum reyndust 10 fengnar, eða 40%. Ekki liggur fyrir árangur Gusts á húsnotkun og sæðingu, en frá því verður greint þegar það liggur fyrir.

 

60% hjá Andvara (12. ágúst 2005)

Nú er lokið við að sónarskoða þær hryssur sem voru hjá Andvara frá Ey á húsnotkun. Af 15 hryssum sem til hans komu reyndust 9 fengnar, eða 60%.

Búið að sónarskoða frá Hrym (11. ágúst 2005)

Hrymur frá Hofi var fyrra gangmál í Rauðuskriðu S-Þing. hjá Hrossaræktarsamtökum Eyfirðinga og Þingeyinga, sem eiga þriðjungshlut í hestinum. 25 hryssur voru hjá Hrym og reyndust 17 þeirra fengnar skv. sónarskoðun, eða 68%. Þetta er heldur lakari útkoma en á síðasta ári, en þá var fyljunarhlutfallið  81% á fyrra gangmáli og 86% á seinna gangmáli.

 

Góður árangur á Héraðssýningu á Dalvík (20. júní 2005)

Búgarður ráðgjafaþjónusta og Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga stóðu að venju fyrir héraðssýningu kynbótahrossa og fór hún fram dagana 8-10. júní sl. Sýningin var haldin í Hringsholti, félagssvæði hestamannafélagsins Hrings í Dalvíkurbyggð. Til dóms mættu 64 hross þar af 9 stóðhestar. Dómarar voru þeir Guðlaugur Antonsson og Sigurður Oddur Ragnarsson. Ágæt útkoma var á sýningunni en 32% fulldæmdra hrossa fór yfir 8,0 í aðaleinkunn. Á Fákaflugi, stórmóti hestamanna sem haldið var 11-12. júní sl. á Melgerðismelum áttu eigendur hátt dæmdra kynbótahrossa sem eru búsettir á Norðurlandi, frá Vestur-Húnavatnssýslu og austur í Norður-Þingeyjarsýslu, rétt á því að hross þeirra tæku þátt í Úrvalssýningu kynbótahrossa sem þar fór fram.    Á meðfylgjandi mynd eru ungar og efnilegar hryssur sem mættu á Fákaflug. Frá hægri talið Sóldögg (5v.) frá Akureyri kn. Höskuldur Jónsson, Sigurrós (5v.) frá Kommu kn. Birgir Árnason, Evíta (5v.) frá Litla-Garði kn. Stefán Birgir Stefánsson, Drottning (5v) frá Skarði kn. Þorvar Þorsteinsson.

 

Héraðssýning kynbótahrossa í Eyjafirði  (30. maí 2005)

Héraðssýning kynbótahrossa verður haldin í Hringsholti, Dalvík 8.-10. júní nk. Tekið verður á móti skráningum í Búgarði, í síma 460-4477 eða netfang vignir@bugardur.is. Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 3. júní.

Sýningargjald kr. 8.500 pr. hross, er hægt að greiða í Búgarði eða inn á reikning 302-13-200861, kt. 490169-1729. Ef greitt er í banka er mikilvægt að faxa strax greiðslukvittun á faxnúmerið 460-4478. Mikilvægt er að fram komi fyrir hvað hross er verið að greiða. Ef greitt er í gegnum netbanka þarf að senda greiðslukvittun á netfangið vignir@bugardur.is. Hafi greiðsla ekki borist í síðasta lagi í lok dags 3. júní er viðkomandi hross ekki skráð í mótið. Endurgreiðsla sýningargjalda kemur aðeins til greina ef látið er vita um forföll áður en dómar hefjast.

Blóðpróf skal taka úr öllum stóðhestum sem koma til fysta dóms, jafnt ungfolum sem eldri hestum og skal framvísa vottorði þar um á dómsstað . Að auki verða allir 5 og 6 vetra stóðhestar að vera myndaðir með tilliti til spatts áður en þeir mæta til sýningar. Afhenda verður dómnefnd vottorð um að búið sé að mynda viðkomandi hest að öðrum kosti verður hesturinn ekki dæmdur. Öll hross sem koma til dóms verða að vera einstaklingsmerkt, þ.e. frost- eða örmerkt.

Þeir sem óska eftir að geyma sýningahross í Hringsholti á meðan á móti stendur hafi samband við Stefán Friðgeirsson í gsm. 897-0278

 

Ársskýrsla HEÞ (30. maí 2005)

Aðalfundur HEÞ var haldinn 23. mars í Hringsholti við Dalvík. Hér má nálgast árskýrslu HEÞ fyrir liðið ár.

Skýrsla stjórnar 2004

 

Námskeið með Daníel Jónssyni í Eyjafirði (4 maí 2005)

Námskeið með Daníel Jónssyni kynbótaknapa verður haldið dagana 13., 14. og 15.maí nk. Á námskeiðinu mun Daníel gefa góð ráð varðandi undirbúning og uppbyggingu kynbótahrossa fyrir sýningu. Námskeiðið verður í formi einkakennslu þar sem menn mæta með hross og fá leiðbeiningar með það. Skráning hjá Baldvin í síma 863-9222 og Vigni í síma 896-1838, og veita þeir allar nánari upplýsingar.

 

WorldFengur - námskeið og fundur með hrossaræktendum (4. maí 2005)

WorldFengur (www.worldfengur.com) er upprunaættbók íslenska hestsins sem er notaður í aðildarlöndum FEIF, alþjóðasamtaka eigenda íslenska hestsins. Í gagnagrunninum eru á þriðja hundrað þúsund hross og fjölgar þeim stöðugt á hverju ári. WorldFengur er einnig gæðaskýrsluhaldskerfi hrossaræktenda og öflugt markaðstæki.
Bændasamtök Íslands og  Búgarður - ráðgjafaþjónusta á Norðausturlandi bjóða nú upp á námskeið í þessu öfluga netforriti sem á annað þúsund áskrifendur eru að í 16 löndum. Farið verður yfir alla þá fjölbreyttu möguleika sem forritið hefur upp á að bjóða, skoðaðar helstu reglur um gæðaskýrsluhald í hrossarækt og sagt frá alþjóðlegum reglum og samstarfi skrásetjara í aðildarlöndum FEIF. Síðasti hluti námskeiðsins fer í umræður um forritið þar sem allar ábendingar eru vel þegnar.
Fyrirlestari verður Jón Baldur Lorange, forstöðumaður tölvudeildar Bændasamtaka Íslands, en hann hefur verið verkefnisstjóri WorldFengs frá upphafi (2001) og einn af höfundum tölvukerfisins Fengs (1991-2001), sem var forveri WorldFengs. Honum til aðstoðar verður Vignir Sigurðsson, framkvæmdastjóri  Búgarðs, sem hefur umsjón um skýrsluhaldi í hrossarækt í Eyjafirði  og Þingeyjarsýslum .
Hrossaræktendur eru hvattir til að nýta sér þetta einstaka tækifæri til að ná tökum á WorldFeng og hafa áhrif á áframhaldandi þróun hans. Námskeiðið verður haldið  í húsi Tölvufræðslunnar að Þórsstíg 4 Akureyri þar sem allir þátttakendur fá aðgang að nettengdum tölvum.  Tímasetning:  þriðjudagur 24. maí  frá kl. 16:00 - 22:00. Námskeiðsgjald kr. 3.000.- (kvöldsnarl og molakaffi innifalið).

Tekið er við skráningu á skiptiborði Búgarðs í síma 460-4477 eða á netfangið vignir@bugardur.is. til mánudagsins 16. maí.

Skráið ykkur sem fyrst til að tryggja þátttöku!
Námskeiðið er styrkt af verkefninu Upplýsingatækni í dreifbýli.

 

Vel heppnað námskeið með Daníel Jónssyni (6. apríl 2005)

1.-3. apríl sl. stóðu Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga fyrir námskeiði í undirbúningi og þjálfun kynbótahrossa. Leiðbeinandi var hinn knái kynbótaknapi Daníel Jónsson. Námskeiðið var vel sótt. þátttakendur komu með eigin hross og fengu leiðbeiningar um hvernig best væri að haga þjálfun fram að kynbótasýningu. Einnig var farið yfir uppstillingu hrossa í byggingardómi ofl. Meðfylgandi mynd er tekin á fundi með þátttakendum í Búgarði. Í skoðun er að halda aftur samskonar námskeið í maí.

 

Hágangur í Eyjafirði (4. apríl 2005)

Stóðhesturinn Hágangur frá Narfastöðum verður í húsnotkun í Litla-Garði Eyfjarðarsveit. Sjá nánar á stóðhestasíðu.

 

Aðalfundur HEÞ (22.mars 2005)

Aðalfundur Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga verður haldin í Hringsholti við Dalvík miðvikudaginn 23. mars kl. 20:30.  Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Allir félagsmenn velkomnir en einungis kjörnir fulltrúar hafa atkvæðisrétt.    Stjórnin.

 

Flygill í Þingeyjarsýslu (15.mars 2005)

Kolfinnssonurinn kraftmikli Flygill frá Vestri-Leirárgörðum verður að öllum líkindum seinna gangmál i S-Þing. sjá nánar á stóðhestar 2005.

 

HEÞ með sölusýningu í Hafnarfirði (8.mars 2005)

Sölusýning verður haldin í reiðhöll Sörla í Hafnarfirði laugardaginn 12.mars nk. og hefst hún kl. 16:00. Að sýningunni standa hrossabændur í Hrossaræktarsamtökum Eyfirðinga og þingeyinga. Sýnd verða um 15 hross á ýmsum stigum tamningar, allt frá góðum fjölskylduhrossum til efnilegra keppnishrossa. Í framhaldi af sýningunni munu Sörlamenn standa fyrir bjórkvöldi í reiðhöllinni.  Allir velkomnir.

 

Almennur hrossaræktarfundur (22. febrúar 2005)

Almennur hrossaræktarfundur verður haldinn í Sveinbjarnargerði þriðjudaginn 1. mars k. 20:30. Frummælendur á fundinum verða Kristinn Guðnason, formaður Félags Hrossabænda, Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur BÍ og Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma.  Allir velkomnir.

 

Sölusýning í Hafnarfirði (14. febrúar 2005)

Sölusýning HEÞ í Hafnarfirði.  Samtökin hafa ákveðið að halda sölusýningu í Hafnarfirði 12. mars nk. Samtökin munu annast kostnað vegna reiðhallar uppihalds söluhrossa og kynningu á þeim, ásamt því að greiða flutningsstyrk kr. 5.000 á hest. Samtökin munu skipuleggja flutning á hrossunum óski menn þess. Kostnaður þeirra sem vilja taka þátt ætti því að vera viðráðanlegur. Skráning í Búgarði 460-4477 eða vignir@bugardur.is til mánudagsins 28 febrúar. Ástæða er til að hvetja félagsmenn til þess að nýta þetta frábæra tækifæri til að koma söluhrossum á framfæri. Þetta er svolítil fyrirhöfn en verður vonandi góð skemmtun.

 

Námskeið í  þjálfun og uppbyggingu kynbótahrossa (14. febrúar 2005)

Námskeið með Daníel Jónssyni kynbótaknapa verður haldið dagana 1.2 og 3. apríl. Á námskeiðinu mun Daníel gefa góð ráð varðandi undirbúning og uppbyggingu kynbótahrossa fyrir sýningu. Námskeiðið er í formi einkakennslu þar sem menn mæta með hross og fá leiðbeiningar með það. Skráning á skiptiborði Búgarðs í síma 460-4477 eða vignir@bugardur.is í síðasta lagi mánudaginn 21. febrúar. Lágmarksþátttaka 8 manns. Staðsetning verður ákveðin þegar þáttaka liggur fyrir. Námskeiðsgjald kr. 12.500.- Félagsmenn í HEÞ sitja fyrir. Allar nánari upplýsingar veitir Baldvin í Torfunesi.

 

Námskeið um mat og meðhöndlun á unghrossum (14. febrúar 2005)

Ákveðið hefur verið að bjóða aftur uppá námskeið um mat og meðhöndlun á unghrossum. Þetta námskeið var haldið í Torfunesi 4. desember sl. og var fullt á það námskeið. Þátttakendur læra að meðhöndla unghross á aldrinum 1 – 4 vetra svo að hægt sé að meta geðslag, ganglag og útlit þeirra annars vegar og hins vegar til að flýta fyrir og auðvelda tamningu seinna meir. Þátttakendur öðlast færni í vali á ungum hrossum til ásetnings með tilliti til verðmætra eiginleika. Leiðbeinendur verða Magnús Lárusson og Svanhildur Hall frá LBH. Námskeiðið verður haldið í Hringsholti við Dalvík. laugardaginn 26. febrúar frá kl. 9.30 – 17.30. Námskeiðsgjald er kr. 13.000.- Framleiðnisjóður landbúnaðarins styrkir bændur um kr. 5.000.- Skráning í Búgarði í síma 460-4477 eða á netfangið vignir@bugardur.is. Síðasti dagur skráningar er 21. febrúar.

Folaldasýning HEÞ (14. febrúar 2005)

Folaldasýning HEÞ verður haldin í reiðhöllinni á Dalvík sunnudaginn 20. febrúar kl. 14:00. Folaldasýningar hafa verið haldnar eða verða haldnar í öllum deildum samtakanna. Þarna munu mæta þau folöld sem staðið hafa í þremur efstu sætunum í hvorum flokki (hestar og hryssur) á hverri sýningu. Einnig er mönnum boðið að kynna ungfola á fjórða vetri og yngri. Nánari upplýsingar hjá Þorsteini Hólm 867-5678.

 

Stóðhestar 2005 (14. febrúar 2005)  Síðan "Stóðhestar 2005" hér til hliðar hefur verið uppfærð.

 

Folaldasýning Hrossaræktarfélags Eyjafjarðar (17. janúar 2005)

"Hin árlega folalda- og ungfolahátíð Hrossaræktarfélags Eyjafjarðar verður sett að Litla-Garði í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 22. janúar n.k. kl. 13. Keppt verður til verðlauna í flokkum álitlegara og glæsilegra folalda og álitlegra ungfola.

Tíðindum sæta glæsileg verðlaun fyrir sigur í öllum flokkum folalda en það eru folatollar undir Hágang frá Narfastöðum, Töfra frá Selfossi og Þorsta frá Garði. Hágangur er glæsihestur með 8.41 fyrir sköpulag og hefur fengið 9 í einkunn fyrir tölt, brokk, fegurð í reið, vilja og stökk. Drottningarhesturinn Töfri, sem einum hesta var treyst til að kynna Önnu Bretaprinsessu gæði og fjölhæfni Íslenzka gæðingakynsins, er einstakur höfðingi með góða þætti í sköpulagi og er með 9 í einkunn fyrir tölt, brokk, stökk, vilja, fegurð í reið og fyrir bæði hægt tölt og stökk. Hinn litfagri Þorsti er vel skapaður alhliða gæðingur með einstaklega glæilega framgöngu í reið og hefur 9 í einkunn fyrir tölt og fegurð í reið, auk þess sem hann er með 8.5 fyrir skeið. -Það er ekki laust við að maður hlakki nú þegar til folaldahátíðarinnar næsta vetur!

Þorsteinn á Grund tekur við skráningum, sem þurfa að berast fyrir kvöldmatarleyti á fimmtudag, á netfang theg@isor.is (helzt!) eða í síma 895 2598. Folöld skráist með nafni, uppruna, lit og foreldrum en ungfolar með nafni og fæðingarnúmeri. Hrossaræktarfélagið hvetur menn til dáða, að þeir komi, sjái, sýni og dæmi ungviði undan m.a. okkar allra beztu hestum. Og að venju verða veitingar á staðnum. "