Folaldasýning Náttfara

Sunnudaginn 27. janúar n.k. stendur Náttfari fyrir folaldasýningu í Melaskjóli á Melgerðismelum.  Dómari verður Eyþór Einarsson en fyrirkomulagið verður þannig að hann dæmir sköpulag folaldanna fyrir hádegi, eftir hádegi –kl.13:00 – verður sjálf sýningin.  Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu folöld í hryssu- og hestaflokki auk þess sem áhorfendum gefst færi á að velja glæsilegasta folaldið.  Þá gefst færi á að skrá til leiks ungfola fædda 2010 og 2011.  Veitingasala verður í Funaborg, opið hús þar í hádeginu.

Skráning fer fram um netfangið esteranna@internet.is eða í síma 466-3140 fram til kl.19:00 föstudagskvöldið 25. janúar.  Við skráningu skal gefa upp nafn, lit, foreldra, ræktanda og eiganda folaldsins.

Ester Hólakoti – Jón Elfar Hrafnagili – Sigríður Hólsgerði